Spánverjinn Rafael Nadal hefur ákveðið að leggja tennisspaðann á hilluna í næsta mánuði eftir gríðarlega farsælan feril.
Nadal, sem er 38 ára, hefur unnið næstflest risamót allra í sögunni, eða 22. Þar af vann hann Opna franska meistaramótið 14 sinnum. Þar er keppt á leir og var Nadal þekktur sem konungur leirsins. Hann hefur glímt mikið við meiðsli undanfarin ár og gerðu þau honum erfitt fyrir á síðustu árum ferilsins.