Jana Eir Kristjánsdóttir fæddist á Landspítalanum í Reykjavík 24. febrúar 2023. Hún lést í fangi foreldra sinna á Barnaspítala Hringsins 3. október 2024, umvafin ást og kærleik.

Foreldrar Jönu Eirar eru Kristján Sigurjónsson, f. 12. september 1995, og Vigdís Eir Viðarsdóttir, f. 23. apríl 1996.

Útför Jönu Eirar fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, 11. október 2024, klukkan 12.

Elsku hjartans ömmu- og afablómið okkar er sofnuð og farin í sumarlandið þar sem hún getur hlaupið um glöð og ánægð.

Hún Jana Eir kom með birtuna með sér þann 24. febrúar 2023, og kvaddi þegar haustið lagðist að 3. október síðastliðinn. Það var fallegur bjartur haustdagur og sólin skein sínum geislum.

Jana Eir hafði sannarlega

...