Hundur sem sló í gegn á internetinu fyrir ári, þegar hann valdi nafn á væntanlegan son eigenda sinna, er aftur kominn í sviðsljósið. Það er vegna þess að Frankie litli tók fyrstu skrefin á dögunum. Beau og Frankie eru óaðskiljanlegir, en foreldrar Frankies segja þá vera sem bræður. Í myndbandi sem þau deildu á TikTok má sjá hvernig þau ákváðu að geyma minninguna um fyrstu skref Frankies með því að festa fótsporin á blað. Þau vildu þó ekki skilja „stóra bróður“ út undan, eins og sjá má í myndbandinu sem yfir 30 milljónir hafa bráðnað yfir. Nánar á K100.is.