Áskoranir í öryggismálum, samstarf á norðurslóðum og tvíhliða varnarsamstarf Íslands og Bandaríkjanna voru meðal málefna sem rædd voru á fundi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra og Charles Q. Brown, formanns bandaríska herráðsins. Um var að ræða fyrstu heimsókn formanns bandaríska herráðsins til Íslands í áraraðir.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. „Við áttum gott samtal um þróun öryggismála og þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í dag bæði á hernaðarsviðinu og vegna margvíslegra fjölþáttaógna,“ er haft eftir Þórdísi Kolbrúnu í tilkynningunni.