Heimild Paul Stanley, söngvari og gítarleikari bandarísku glysrokksveitarinnar Kiss, upplýsti á samfélagsmiðlum sínum í vikunni að þeir félagar ynnu nú að heimildarmynd um kveðjutónleikaferð sína, End of the Road. Myndin verður í fimm hlutum og ekki veitir víst af enda stóð téð ferðalag árum, jafnvel áratugum, saman; lauk loks í Madison Square Garden í New York í desember í fyrra. Stanley birti af þessu tilefni ljósmynd af eiginkonu sinni, Erin Sutton, þar sem hún situr fyrir svörum vegna myndarinnar.