Cole Palmer sóknarmiðjumaður Chelsea var í gær útnefndur besti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í september. Palmer lék fjóra leiki með liðinu í mánuðinum, skoraði fimm mörk og lagði upp eitt. Hann skoraði fjögur markanna í sigri á Brighton, 4:2. Knattspyrnustjóri Chelsea, Enzo Maresca, var útnefndur stjóri septembermánaðar. Chelsea vann þrjá af
...