Formenn Framsóknarflokks og Vinstri grænna voru boðaðir á fund forseta Íslands að Staðastað við Sóleyjargötu í gær, þar sem rætt var um stöðu mála og komandi tíma í þingheiminum.
„Þingmennirnir eru bara klárir í slaginn. Við erum Framsóknarflokkur. Við erum klár með allt verklag þannig að það er búið að setja allar vélar í gang og við erum tilbúin í kosningar,“ sagði Sigurður Ingi formaður Framsóknarflokksins er hann ræddi stuttlega við blaðamenn fyrir fund sinn með forsetanum.
...