Ung áströlsk kona hefur vakið mikla athygli eftir að hún komst að því að krúttlegur Croissant-lampi, frá umdeildu netversluninni Temu, var í raun ekta croissant. Þegar hún kom að lampanum umkringdum maurum eftir heitan vinnudag fór hana…
Ung áströlsk kona hefur vakið mikla athygli eftir að hún komst að því að krúttlegur Croissant-lampi, frá umdeildu netversluninni Temu, var í raun ekta croissant. Þegar hún kom að lampanum umkringdum maurum eftir heitan vinnudag fór hana að gruna að lampinn væri ekki allur þar sem hann var séður. Hún deildi myndbandi af lampanum inni á TikTok, þar sem hún brýtur hann og sýnir innihald lampans sem líktist plasthúðuðu brauðmeti. Hún staðfesti grun sinn með því að smakka örlítinn bita af lampanum. Nánar um málið í furðufréttum á K100.