Íslandsmeistarar Vals mæta sænska liðinu Kristianstad í 32 liða úrslitum Evrópubikars kvenna í handknattleik í næsta mánuði en dregið var í höfuðstöðvum EHF í Vínarborg í Austurríki í gær. Haukar mæta þá króatíska liðinu Dalmatinka Ploce. Fyrri leikirnir fara fram 9. og 10. nóvember og síðari leikirnir 16. og 17. nóvember. Með Kristianstad leika íslensku landsliðskonurnar Jóhanna Margrét Sigurðardóttir og Berta Rut Harðardóttir.