Hættir Elías Már Halldórsson hættir að þjálfa Fredrikstad í vor.
Hættir Elías Már Halldórsson hættir að þjálfa Fredrikstad í vor. — Morgunblaðið/Eggert

Elías Már Halldórsson mun láta af störfum sem þjálfari kvennaliðs Fredrikstads í handknattleik, sem leikur í norsku úrvalsdeildinni, að loknu yfirstandandi keppnistímabili. Þetta kom fram í tilkynningu á heimasíðu norska félagsins. Elías Már tók við starfinu sumarið 2021 og er því á sínu fjórða tímabili með liðið. Það hafnaði í fimmta sæti úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili og tekur þátt í riðlakeppni Evrópudeildarinnar á yfirstandandi tímabili.