— Morgunblaðið/Eggert

Þoka lá yfir höfuðborgarsvæðinu þegar fólk fór á stjá í gærmorgun en smám saman létti til þegar leið á daginn. Þessir ferðamenn röltu í rólegheitum í gegnum þokuna við Reykjavíkurtjörn í gær og komust ef til vill að því hvort margt búi í þokunni eins og stundum er haldið fram. Aftur tók að bera á þokunni undir kvöld en í dag er spáð rigningu í Reykjavík að morgni og fyrri hluta dags.