Svartir fuglar nefnist nýtt dansverk eftir Láru Stefánsdóttur spunnið út frá ljóðum Elísabetar Jökulsdóttur úr bókinni Sjáðu, sjáðu mig, það er eina leiðin til að elska mig, sem sýnt verður í Tjarnarbíói laugardagana 19. og 26. október kl. 15. Verkið, sem er hluti af List án landamæra, var samið sérstaklega fyrir Láru Þorsteinsdóttur. „Mörg ættu að geta tengt við ljóðin því flest leitast við að tengjast sinni innri fegurð, sínum kjarna á lífsleiðinni en þurfa oftar en ekki að takast á við alls konar skuggahliðar og tilfinningar í leitinni að ljósinu, gleðinni, ástinni og kærleikanum,“ segir í kynningu. Dansarar með Láru eru Íris Ásmundardóttir og Sigurður Edgar Andersen.