Tilkynnt verður um hver hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs á þriðjudag, 22. október. Verður það gert í sjónvarpsþætti sem Ríkissjónvarpið sendir út og sýndur verður á öllum Norðurlöndunum. Handhafa verðlaunanna verður síðan afhent styttan…

Af bókmenntum

Ragnheiður Birgisdóttir

ragnheidurb@mbl.is

Tilkynnt verður um hver hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs á þriðjudag, 22. október. Verður það gert í sjónvarpsþætti sem Ríkissjónvarpið sendir út og sýndur verður á öllum Norðurlöndunum. Handhafa verðlaunanna verður síðan afhent styttan Norðurljós á sérstakri verðlaunahátíð í tengslum við þing Norðurlandaráðs í Reykjavík 29. október.

Í fyrri hluta umfjöllunar Morgunblaðsins um tilnefndar bækur verða teknar fyrir skáldsögur auk verks sem flokkað er sem persónuleg frásögn. Tilnefndar ljóðabækur, sem og þau verk sem kalla má konseptverk, verða til umfjöllunar á laugardag, 19. október.

Fyrir Íslands hönd eru tilnefndar bækurnar Jarðsetning eftir

...