Handknattleiksmaðurinn Arnór Viðarsson hélt út í atvinnumennsku þegar hann samdi við danska félagið Fredericia í sumar. Þar var Eyjamanninum hent rakleitt út í djúpu laugina þar sem Íslendingaliðið tekur þátt í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fyrsta sinn á yfirstandandi tímabili.

Arnór er 22 ára gamall og stefnir enn hærra, þar á meðal að vinna sér inn sæti í A-landsliði Íslands og leika með því á stórmóti. » 27