Stöllurnar í Hong Kong.
Stöllurnar í Hong Kong.

Denise, dansari, danskennari og yfirflugfreyja hjá Play, og Karitas, viðskiptafræðingur og viðburðastjóri Iceland Innovation Week, kynntust þegar þær voru báðar búsettar í kínversku borginni Hong Kong árið 2018.

„Þetta varð allt fyrir hálfgerða tilviljun,“ segja þær einum rómi. „Sko, þetta er nú svolítið skondið. Karitas hafði verið búsett og starfandi í Kína í um það bil eitt ár þegar hún ákvað að flytja til Hong Kong árið 2018, en þáverandi vinnustaður hennr var með starfsstöð þar,“ útskýrir Denise sem var akkúrat í leit að nýjum herbergisfélaga á þessum tíma. „Hún flutti inn. Við urðum fljótt nánar og góðar vinkonur, eða réttara sagt bestu vinkonur. Við höfum brallað ýmislegt saman í gegnum árin, eyddum yndislegum stundum í Hong Kong og erum nú orðnar viðskiptafélagar.“

Á réttri

...