— Morgunblaðið/Eyþór

Létt var yfir mönnum þegar fyrstu skóflustungurnar voru teknar á Laugardalsvellinum í gær. Til stendur að setja hitunarkerfi undir völlinn og vera með blöndu af náttúrulegu grasi og gervigrasi eins og fram hefur komið. Frá vinstri: Einar Þorsteinsson borgarstjóri, Þorvaldur Örlygsson formaður KSÍ og Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra í starfsstjórn.