Úrslit Kvennalandsliðið hafnaði í öðru sæti í gær eftir harða baráttu við Svíþjóð. Liðið á möguleika á að verða Evrópumeistari á morgun.
Úrslit Kvennalandsliðið hafnaði í öðru sæti í gær eftir harða baráttu við Svíþjóð. Liðið á möguleika á að verða Evrópumeistari á morgun. — Ljósmynd/Fimleikasamband Íslands

Kvennalið Íslands fékk næsthæstu einkunn allra í undanúrslitum Evrópumótsins í hópfimleikum í Bakú í Aserbaídsjan í gær. Liðið er þar með komið í úrslit, sem fara fram á morgun.

Íslenska liðið fékk samtals 53.250 stig og hafnaði aðeins 700 stigum fyrir neðan Svíþjóð. Ísland fékk 17.950 stig fyrir gólfæfingar en þar endaði Svíþjóð með 19.250 stig.

Íslenska liðið fékk hins vegar flest stig allra í hinum tveimur greinunum, 18.150 stig fyrir stökk og 17.150 stig fyrir trampólín.

Svíþjóð er ríkjandi Evrópumeistari eftir sigur í Lúxemborg á síðasta ári. Ísland fékk þá silfurverðlaun.

Blandað lið Íslands er einnig komið í úrslit en það fékk 51.100 stig samtals og hafnaði í fjórða sæti í

...