Steinunn Hjartar Ólafsdóttir fæddist í Bolungarvík 17. júní 1930. Hún lést á Landspítalanum 1. október 2024.

Foreldrar hennar voru Ólafur M. Ólafsson, f. 24.9. 1892, d. 16.1. 1974, og Margrét Hálfdánardóttir, f. 6.1. 1901, d. 7.9. 1990. Systkin Steinunnar voru: Margrét, f. 1925, d. 2022, Hálfdán Daði, f. 1926, d. 1993, Álfhildur, f. 1933, d. 2007, og Kristján Gunnar, f. 1934, d. 1959.

Steinunn giftist eiginmanni sínum Pétri Guðmundssyni, f. 2.1. 1927, d. 5.4. 2011, frá Reykjavík, þann 30. júní 1951. Foreldrar Péturs voru Guðmundur Magnússon, f. 14.2. 1893, d. 13.5. 1985, og Helga Jónsdóttir, f. 31.7. 1895, d. 28.9. 1992. Börn Steinunnar og Péturs eru: 1) Guðmundur, f. 14.4. 1951, d. 13.7. 1966. 2) Margrét, f. 5.4. 1955, gift Ómari Þór Árnasyni, f. 9.11. 1950. Dóttir Margrétar og Ómars er Valdís, f. 23.11. 1991. 3) Sverrir, f. 6.11. 1957, giftur Friðgerði

...