Guðmundur Birnir Sigurgeirsson fæddist 31. júlí 1944 í Móeiðarhvolsháleigu í Rangárvallasýslu. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 7. október 2024.

Foreldrar hans voru Sigurgeir Gunnar Ingvarsson frá Minna-Hofi, f. 18. júlí 1914, d. 28. nóvember 2011, og Guðríður Guðmundsdóttir frá Háamúla, f. 14. nóvember 1918, d. 24. febrúar 1996. Systkini hans eru Sigrún Inga, f. 2.1 október 1941, d. 12. ágúst 2007, og Pálmar Sölvi, f. 28. apríl 1952.

Eftirlifandi eiginkona Guðmundar Birnis er Ágústa Traustadóttir frá Vestmannaeyjum, f. 12. febrúar 1943. Þau gengu í hjónaband hinn 19. október 1963. Foreldrar hennar voru Trausti Jónsson frá Mörk, f. 11. janúar 1917, d. 2. janúar 1994, og Ágústa Haraldsdóttir frá Garðshorni, f. 14. ágúst 1919, d. 27. desember 1989.

Börn Guðmundar Birnis og Ágústu eru þrjú:

...