Inga Aðalheiður Guðbrandsdóttir fæddist 20. júlí 1929. Hún lést 17. september 2024.

Inga var jarðsungin 4. október 2024.

Elsku amma mín hefur kvatt þennan heim.

Eftir hvern skóladag labbaði ég til ömmu á Gunnarsbrautina og þar beið alltaf hlýja faðmlagið hennar og bakkelsi á borðinu. Stundum beið hún eftir að ég kæmi svo við gætum gert hveitikökur með bleikum glassúr saman. Það voru margar stundirnar sem við föndruðum saman og spiluðum veiðimann eða þjóf. Ég gisti flestallar helgar því að vera hjá ömmu var það skemmtilegasta sem ég gerði. Amma var alltaf til staðar fyrir mann, hlustaði á mann og gerði allt til þess að manni liði vel. Ég man eitt sinn sem ég var að föndra hjá ömmu og var nálægt tölvunni hennar sem var alltaf á eldhúsborðinu. Amma segir við mig að passa mig að klippa ekki í snúruna

...