Ungverjaland Aron Pálmarsson er á leið til Veszprém á nýjan leik.
Ungverjaland Aron Pálmarsson er á leið til Veszprém á nýjan leik. — Morgunblaðið/Eyþór

Landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson er á förum frá FH og á leið til síns gamla félags Veszprém í Ungverjalandi, samkvæmt heimildum Handball-Planet. Samkvæmt miðlinum mun Aron gera samning við Veszprém út yfirstandandi leiktíð. Bjarki Már Elísson leikur með liðinu. Aron sneri heim úr atvinnumennsku fyrir síðustu leiktíð og varð Íslandsmeistari með FH síðastliðið vor. Aron, sem er 34 ára, lék með Veszprém frá 2015 til 2017 eða þar til hann samdi við Barcelona.