Það eru árshátíðir eða aðrar vinnustaðaskemmtanir fram undan, afmæli og loks jólahlaðborð eða tónleikar. Nú er tíminn til að fjárfesta í góðum partíkjól sem passar þér vel og þú getur notað oft. Ef þú sérð hinn fullkomna kjól skaltu ekki hika við…
Kjóll úr Vero Moda, kostar 8.990 kr.
Kjóll úr Vero Moda, kostar 8.990 kr.

Það eru árshátíðir eða aðrar vinnustaðaskemmtanir fram undan, afmæli og loks jólahlaðborð eða tónleikar. Nú er tíminn til að fjárfesta í góðum partíkjól sem passar þér vel og þú getur notað oft. Ef þú sérð hinn fullkomna kjól skaltu ekki hika við kaupin, því flottir kjólar eru vandfundnir og eiga það til að klárast hratt í búðum. Það eru nú einu sinni flestir í sömu erindagjörðum.

Með haustinu fóru stuttir kjólar og pils að vera mun meira áberandi en áður og er úrvalið af þeim í verslunum sífellt að aukast. Ef það heillar ekki er kjóllinn sem nær um miðja kálfa líka alltaf klassískur. Ekki hræðast glimmerið og glingrið því það er svo skemmtilegt og við hæfi allan veturinn.