Guðbrandur Sigurðsson
Guðbrandur Sigurðsson

„Við verðum bara að krossa fingur að banaslysum fjölgi ekki meira en orðið er, því árinu er ekki lokið,“ segir Guðbrandur Sigurðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn en í lok september voru komin jafnmörg banaslys á höfuðborgarsvæðinu og allt árið 2023, eða tvö. Fyrstu níu mánuði ársins slösuðust 417 manns í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu. Það er heldur færra en undanfarin ár, miðað við sama tímabil.

Fyrstu níu mánuðina urðu ríflega 100 slys tengd rafskútum. » 4