Fylkir Árni Freyr Guðnason er nýr þjálfari Fylkismanna í Árbænum.
Fylkir Árni Freyr Guðnason er nýr þjálfari Fylkismanna í Árbænum. — Ljósmynd/Fylkir

Knattspyrnudeild Fylkis hefur gengið frá ráðningu á Árna Frey Guðnasyni og verður hann nýr þjálfari meistaraflokks karla. Árni tekur við af Rúnari Páli Sigmundssyni sem lét af störfum hjá Fylki á dögunum eftir rúm þrjú ár með liðið. Árni hefur náð stórgóðum árangri með ÍR undanfarin tvö ár. Hann kom liðinu upp í 1. deild á sínu fyrsta ári og fór með liðið alla leið í umspil um sæti í Bestu deildinni, þar sem liðið tapaði fyrir Keflavík í undanúrslitum.