Tónlistarhópurinn Umbra ­Ensemble mun vinna með valið efni úr bókinni Hvað verður fegra fundið? í Hallgrímskirkju á morgun, sunnudaginn 20. október, klukkan 17-18. Segir í tilkynningu að bókin sé í vinnslu fyrir „Minningarár Hallgríms Péturssonar –…
Umbra Ensemble Hópurinn vinnur með valið efni á tónleikunum.
Umbra Ensemble Hópurinn vinnur með valið efni á tónleikunum.

Tónlistarhópurinn Umbra ­Ensemble mun vinna með valið efni úr bókinni Hvað verður fegra fundið? í Hallgrímskirkju á morgun, sunnudaginn 20. október, klukkan 17-18.

Segir í tilkynningu að bókin sé í vinnslu fyrir „Minningarár Hallgríms Péturssonar – 350“ og innihaldi andlega og veraldlega texta eftir skáld sem valin voru af sr. Irmu Sjöfn Óskarsdóttur, Steinunni Jóhannesdóttur, Svanhildi Óskarsdóttur og Margréti Eggertsdóttur.

„Veraldleg ljóð Hallgríms Péturssonar hafa ekki fengið mikla athygli í tónsköpun en eftir hann liggja ljóð og kvæði sem eru magnaður spegill á merkilega ævi skáldsins og heimsmynd 17. aldar.“