11 Þórey Anna Ásgeirsdóttir fór hamförum og skoraði 11 mörk í gærkvöldi.
11 Þórey Anna Ásgeirsdóttir fór hamförum og skoraði 11 mörk í gærkvöldi. — Morgunblaðið/Anton Brink

Íslands-, bikar- og deildarmeistarar Vals í handknattleik kvenna héldu áfram góðu gengi sínu í úrvalsdeildinni þegar liðið heimsótti nýliða Gróttu á Seltjarnarnes og hafði betur, 38:30, í sjöttu umferð deildarinnar í gærkvöldi.

Valur er áfram með fullt hús stiga, 12, á toppi deildarinnar eftir sex leiki. Grótta er í áttunda og neðsta sæti með tvö stig.

Þórey Anna Ásgeirsdóttir var markahæst í leiknum með 11 mörk fyrir Val. Sigríður Hauksdóttir skoraði þá sjö mörk úr jafnmörgum skotum. Lovísa Thompson og Elín Rósa Magnúsdóttir skoruðu sex mörk hvor.

Hafdís Renötudóttir varði 13 skot í marki Vals og var með tæplega 32 prósenta markvörslu.

Markahæst hjá Gróttu var Ída Margrét Stefánsdóttir með sex mörk.