Grundartangi Uppbygging landeldis á svæðinu á að taka þrjú til fjögur ár.
Grundartangi Uppbygging landeldis á svæðinu á að taka þrjú til fjögur ár. — Morgunblaðið/Árni Sæberg

Fyrirhugað landeldi Aurora fiskeldis ehf. á laxi á Grundartanga í Hvalfirði er líklegt til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif að mati Skipulagsstofnunar og þarf að fara í umhverfismat. Áætlanir fyrirtækisins gera ráð fyrir að landeldisstöðin verði á lóð nr. 34 á Grundartanga norðaustan við álver Norðuráls við Katanestjörn og er stefnt að bæði seiðaeldi og matfiskeldi í stöðinni. Fyrirhuguð framleiðsla er um 14 þúsund tonn á ári og verða alls notuð 44 ker. Uppbygging er talin munu taka þrjú til fjögur ár. » 30