Skjálftavirkni hefur síst minnkað í Ljósufjallakerfinu undanfarinn mánuð. 104 skjálftar hafa mælst frá 1. til 30. október. Til samanburðar höfðu 126 skjálftar mælst það sem af var ári 30. september. Veðurstofa Íslands kom fyrir nýjum mæli í lok…

Skjálftavirkni hefur síst minnkað í Ljósufjallakerfinu undanfarinn mánuð. 104 skjálftar hafa mælst frá 1. til 30. október. Til samanburðar höfðu 126 skjálftar mælst það sem af var ári 30. september.

Veðurstofa Íslands kom fyrir nýjum mæli í lok september í ljósi aukinnar virkni í Ljósufjallakerfinu undanfarna mánuði og ár. Í ágústmánuði mældust 78 skjálftar og var smáskjálftahrinan í þeim sú stærsta í kerfinu frá upphafi mælinga árið 2009 sé litið til fjölda skjálfta.

Ljósu­fjalla­kerfið teyg­ir sig frá Kolgrafaf­irði í vestri að Norðurá í Borg­ar­f­irði og dreg­ur nafn sitt af fjall­g­arðinum á Snæ­fellsnesi. Skjálft­arn­ir hafa þó að mestu verið bundn­ir við af­markað svæði við Grjótár­vatn og Hít­ar­vatn, í grennd við þar sem nýja mælinum var komið fyrir.