Þórunn G. Pétursdóttir fæddist í Stykkishólmi 23. nóvember 1943. Hún lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 13. október 2024.

Foreldrar hennar voru Pétur Eiríksson, fiskmatsmaður og sundkappi, f. 31. júlí 1917, d. 5. júlí 1998, og Marta Finnbogadóttir húsfreyja, f. 5. mars 1922, d. 18. júlí 1981.

Þórunn var elst í hópi fimm systkina. Systkini hennar eru Sigríður, Elísabet, Eiríkur og Finnbogi.

Þórunn giftist 22. september 1962 Guðbirni Móses Péturssyni, vélfræðingi og skipstjóra, f. 5. mars 1940.

Börn Þórunnar og Guðbjörns eru: 1) Guðrún Hrönn Guðbjörnsdóttir, eiginmaður hennar er Sigurður Þorsteinsson, dætur þeirra eru: I) Þórunn, dóttir hennar Dagbjört Fjóla, II) Elín, eiginmaður hennar er Hermann Valdi, börn

...