Halla Tómasdóttir forseti Íslands og eiginmaður hennar Björn Skúlason tóku við fyrsta neyðarkalli ársins 2024 á Bessastöðum í gær. Neyðarkall ársins er hamfarasérfræðingur og er salan á honum eitt af aðalfjáröflunarátökum björgunarsveita.
Skiptir sala neyðarkallsins miklu fyrir rekstur björgunarsveitanna. „Hlutverk neyðarkalls ársins þarf ekki að koma neinum á óvart, en hamfarir af ýmsum toga hafa reynt mikið á seiglu björgunarsveita um allt land undanfarin misseri og ár,“ segir í tilkynningu frá Landsbjörg.
Neyðarkallinn verður í sölu til sunnudagsins 3. nóvember.