Þorlákur Árnason var á dögunum ráðinn þjálfari karlaliðs ÍBV í fótbolta. Gerði hann þriggja ára samning við ÍBV og tekur við af Hermanni Hreiðarssyni, sem hætti með liðið eftir að hann kom því upp í Bestu deildina, eftir eitt tímabil í 1. deild. „Þetta gerðist hratt. Ég lauk störfum í Portúgal og kom heim og var varla sestur í sófann þegar Eyjamenn hringdu,“ sagði Þorlákur í samtali við Morgunblaðið. Hann er uppalinn í Vestmannaeyjum og spenntur að þjálfa í heimabænum. » 77