Kristján Hafþórsson, eða Krissi Haff, er líklega einn jákvæðasti maður landsins. Nú býður hann upp á hvetjandi fyrirlestra á peppandi.is. Krissi heldur einnig úti hlaðvarpinu Já kastinu og hefur framleitt barnaefnið Hvíta tá fyrir Stöð 2
Kristján Hafþórsson, eða Krissi Haff, er líklega einn jákvæðasti maður landsins. Nú býður hann upp á hvetjandi fyrirlestra á peppandi.is. Krissi heldur einnig úti hlaðvarpinu Já kastinu og hefur framleitt barnaefnið Hvíta tá fyrir Stöð 2. Í morgunþættinum Ísland vaknar ræddi hann um nýju fyrirlestraröðina sína, Þú ert frábær, og mikilvægi vonarinnar.
„Jákvæðni er bara strangheiðarleikinn í að vera maður sjálfur og líða eins og manni líður,“ sagði hann.
Hlustaðu á viðtalið á K100.is til að heyra meira.