Stjórnvölur er ekki óþekktur hér á bæ. Bókstaflega er þetta bátsstýri, t.d. stýrishjól eða þá sveif eða armur sem festur er á stýri. Svo er maður, situr eða stendur við og heldur um…
Stjórnvölur er ekki óþekktur hér á bæ. Bókstaflega er þetta bátsstýri, t.d. stýrishjól eða þá sveif eða armur sem festur er á stýri. Svo er maður, situr eða stendur við og heldur um stjórnvölinn. Maður getur líka tekið við stjórnvelinum. En ekki „taka stjórnvöl“ og enn síður „einhverja stjórnvöl“ ef ætlunin er að taka stjórnina.