Pétur Guðmundsson var besti dómarinn í Bestu deild karla í fótbolta árið 2024 samkvæmt einkunnagjöf Morgunblaðsins. Pétur, sem var elsti dómari deildarinnar, 55 ára gamall, dæmdi 18 leiki í deildinni á árinu og fékk í þeim meðaleinkunnina 7,89 hjá…
7,89 Pétur Guðmundsson var besti dómarinn í Bestu deild karla.
7,89 Pétur Guðmundsson var besti dómarinn í Bestu deild karla. — Morgunblaðið/Ólafur Árdal

Besta deild

Víðir Sigurðsson

vs@mbl.is

Pétur Guðmundsson var besti dómarinn í Bestu deild karla í fótbolta árið 2024 samkvæmt einkunnagjöf Morgunblaðsins.

Pétur, sem var elsti dómari deildarinnar, 55 ára gamall, dæmdi 18 leiki í deildinni á árinu og fékk í þeim meðaleinkunnina 7,89 hjá blaðinu en einkunnir dómara eru gefnar á skalanum frá 1 til 10.

Hann var með nokkra yfirburði á næstu menn en Erlendur Eiríksson, næstelsti dómarinn, 53 ára, varð í öðru sæti af þeim átta dómurum sem dæmdu bróðurpart leikjanna. Erlendur dæmdi 17 leiki og fékk meðaleinkunnina 7,47.

• Ívar Orri

...