Ómar Ívarsson geðlæknir fæddist 15. nóvember 1957 á Akureyri. Hann lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild Landspítalans 23. október 2024.
Foreldrar hans eru Jóhanna Halldóra Steindórsdóttir, f. 2. desember 1941 og Ívar Baldvinsson, f. 19. nóvember 1939, dáinn 11. október 2011.
Ómar var elstur í hópi sex systkina. Þau eru: Baldvin Leifur Ívarsson, f. 1960, Hekla Björk Ívarsdóttir, f. 1963, sammæðra Ragnheiður Birna Björnsdóttir, f. 1974, samfeðra Ásgeir Vincent Ívarsson, f. 1991 og Ásgrímur Hervin Ívarsson, f. 1999.
Ómar kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Hildi Ölmu Björnsdóttur, þann 26. september 1981. Dætur Ómars og Hildar eru: 1) Helena Ómarsdóttir, f. 1983. Börn Helenu og Þórarins Möller eru Nökkvi Þór, f. 2006 og Nadía Örk, f. 2009. Börn Helenu og Skapta Þóroddssonar eru Manuel
...