Jenný Sif Steingrímsdóttir hjá Alvotech myndi velja gráðu á sviði rekstrar eða viðskipta fengi hún tækifæri til að bæta við sig nýrri gráðu.
Jenný Sif Steingrímsdóttir hjá Alvotech myndi velja gráðu á sviði rekstrar eða viðskipta fengi hún tækifæri til að bæta við sig nýrri gráðu. — Morgunblaðið/Árni Sæberg

Jenný Sif segist vera heppin að vinna daglega með fólki af 65 mismunandi þjóðernum. Hún sækir innblástur í samstarfsfólkið hjá Alvotech og markmið þess að auka lífsgæði almennings með aðgengi að líftæknilyfjum.

Hverjar eru helstu áskoranirnar
í rekstrinum þessi misserin?

Alvotech er að vaxa hratt, þar sem fyrirtækið er að leggja aukna áherslu á framleiðsluhliðina og fjöldi nýrra lyfja er að koma á markað. Þetta kallar á breytta mönnun og þjálfun starfsfólks, einkum í framleiðslu og gæðaeftirliti. Því fylgir óhjákvæmilega álag, en það er jafnframt ákaflega gefandi að fá að taka þátt í að byggja upp nýja stoð í atvinnulífinu á Íslandi.

Hvað gerirðu til að fá orku
og innblástur í starfi?

Innblásturinn sæki ég í samstarfsfólkið.

...