Gunnar Einarsson og Ívar Ingimarsson, þjálfarar kvennaliðs KR í knattspyrnu, hafa skrifað undir nýja samninga og taka því slaginn með liðinu í 1. deild á næsta tímabili. Á sama tíma var gengið frá samningi við Gunnar um að hann verði yfirþjálfari…
Þjálfarar Gunnar Einarsson og Ívar Ingimarsson halda áfram með KR.
Þjálfarar Gunnar Einarsson og Ívar Ingimarsson halda áfram með KR. — Ljósmynd/KR

Gunnar Einarsson og Ívar Ingimarsson, þjálfarar kvennaliðs KR í knattspyrnu, hafa skrifað undir nýja samninga og taka því slaginn með liðinu í 1. deild á næsta tímabili. Á sama tíma var gengið frá samningi við Gunnar um að hann verði yfirþjálfari yngri flokka kvenna auk þess sem Ívar mun stýra afreksþjálfun félagsins. Á síðasta tímabili komu Gunnar og Ívar kvennaliði KR upp úr 2. deild eftir að liðið hafði fallið úr 1. deildinni sumarið 2023.