Landsleikur Mikael Andersen í mikilli baráttu gegn Svartfellingum.
Landsleikur Mikael Andersen í mikilli baráttu gegn Svartfellingum. — Morgunblaðið/Árni Sæberg

Leikur Svartfjallalands og Íslands í B-deild Þjóðadeildar Evrópu mun ekki fara fram á þjóðarleikvangi Svartfellinga í höfuðborginni Podgorica eins og til stóð þar sem vallaraðstæður eru ekki viðunandi að mati Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA. Leikurinn fer þess í stað fram í Niksic, sem er í klukkutíma aksturfjarlægð frá Podgorica. Lið Svartfjallalands mátti ekki heldur leika gegn Wales á vellinum í Podgorica í september síðastliðnum.