Diljá Ögn Lárusdóttir leikmaður Stjörnunnar er mætt aftur í landsliðið í körfubolta eftir árs fjarveru vegna meiðsla. „Það er geggjað að vera mætt hingað og virkilega gaman að fá að spila körfubolta aftur eftir eins árs fjarveru. Það er geggjað að fá að spila með bestu stelpum landsins,“ sagði Diljá í samtali við Morgunblaðið fyrir æfingu landsliðsins í Ólafssalnum í gær. » 22