Ólafur Pálsson
olafur@mbl.is
Tindur Mount Everest, hæsta fjalls heims, stendur í um 8.849 metra hæð yfir sjávarmáli. Gengið er á hann frá Tíbet í norðri og Nepal í suðri svo grunnbúðir er að finna beggja vegna. Um 800 manns reyna við tindinn á ári hverju en tveimur þriðju tekst að jafnaði að komast alla leið. Tólf Íslendingar hafa toppað Everest frá árinu 1997.
Mun fleiri ganga í grunnbúðirnar eða 30 til 40 þúsund manns á ári hverju. Jafnan er annars vegar gengið að vori, frá mars og fram í maí, og hins vegar að hausti, frá september og fram í nóvember. Algengara er að Íslendingar fari að hausti.
850 þúsund króna ævintýri
Auglýst ferð á vegum íslenskrar ferðaskrifstofu kostar um 580 þúsund krónur á
...