Unnur Long Thorarensen fæddist í Reykjavík 24. janúar 1936. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 3. nóvember 2024.

Foreldrar hennar voru Þórir Long trésmiður, f. 2. júní 1907, d. 18. júní 1983, og Sigurlín Unnur Ármann Sigurðardóttir Long, f. 3. nóvember 1913, d. 27. desember 1998

Systkini: Erla Ingibjörg, f. 28. desember 1933; Jónína Sigrún, f. 3. mars 1937, d. 9. október 2018; Anna Birna, f. 10. júní 1938, d, 19. desember 2009; Einar, f. 2. september 1958.

Unnur giftist 27. nóvember 1958 Oddi C.S. Thorarensen lyfjafræðingi og apótekara í Laugavegs apóteki, f. 26. apríl 1925, d. 20. desember 2011.

Börn þeirra eru: 1) Ragnheiður Katrín, f. 10. mars 1959, maki Ragnar Heiðar Kristinsson, d. 18.8. 2011. 2) Elín, f. 10. apríl 1964,

...