Borgaryfirvöld hafa samþykkt að auglýsa nýtt deiliskipulag fyrir Geirsnef. Gera á Geirsnef að borgargarði, útivistarsvæði með náttúrulegu yfirbragði. Með þéttingu íbúðabyggða, bæði í Vogabyggð og í og við Ártúnshöfða, verði Geirsnef sífellt mikilvægara útivistarvæði fyrir íbúa
Borgargarður Geirsnef teygir sig í átt að Elliðaárósum, við hlið Elliðaánna. Mikil uppbygging íbúðarhúsnæðis hefur verið og er fyrirhuguð í nágrenninu.
Borgargarður Geirsnef teygir sig í átt að Elliðaárósum, við hlið Elliðaánna. Mikil uppbygging íbúðarhúsnæðis hefur verið og er fyrirhuguð í nágrenninu. — Ljósmynd/Ragnar Th - www.arctic-images.com

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Borgaryfirvöld hafa samþykkt að auglýsa nýtt deiliskipulag fyrir Geirsnef. Gera á Geirsnef að borgargarði, útivistarsvæði með náttúrulegu yfirbragði.

Með þéttingu íbúðabyggða, bæði í Vogabyggð og í og við Ártúnshöfða, verði Geirsnef sífellt mikilvægara útivistarvæði fyrir íbúa.

Geirsnef varð fyrst til sem uppfylling á náttúrulegum óseyrum Elliðaár, að því er fram kemur í frjálsa alfræðiritinu Wikipediu. Uppfyllingin hófst í borgarstjórnartíð Geirs Hallgrímssonar (1959-1972) og var hún nefnd eftir honum.

Nálægt Vogabyggð

Svæðið afmarkast af skipulagsmörkum í gildandi skipulagi í austri og suðri. Það er frá Elliðaám í austri og Vesturlandsvegi í suðri.

...