Sigurður Jakob Arnórsson fæddist í Reykjavík 5. nóvember 1953. Hann lést á heimili sínu 1. nóvember 2024.

Foreldrar hans voru Jónína Einþórsdóttir, f. 4. júlí 1924, d. 2. febrúar 1990, og Arnór Kristján Sigurðsson, f. 3. júní 1923, d. 5. september 1993.

Systkini eru Guðni Þór, f. 11. apríl 1956, og Þorgerður, f. 25. október 1943.

Hinn 19. júlí 1980 kvæntist Sigurður Þóru Flygenring kennara, f. 10. apríl 1955. Hún er dóttir Guðbjargar Flygenring og Ágústar Flygenring sem bæði eru látin. Synir þeirra eru Guðmundur, f. 16. september 1982, og Arnór, f. 31. ágúst 1985.

Sigurður ólst upp í Hafnarfirði frá tveggja ára aldri og bjó þar síðan. Hann var í sveit á Mýrum í Skriðdal hjá afabróður sínum og fjölskyldu hans og var þar í mörg sumur. Sigurður

...