Þau Sólrún Bragadóttir sópran og Jón Sigurðsson píanóleikari flytja aríur eftir J.S. Bach og F. Händel á hádegistónleikum sem fram fara í dag, fimmtudaginn 14. nóvember, í Fríkirkjunni við Tjörnina. Segir í tilkynningu að einnig flytji þau Ave…
Sólrún Bragadóttir
Sólrún Bragadóttir

Þau Sólrún Bragadóttir sópran og Jón Sigurðsson píanóleikari flytja aríur eftir J.S. Bach og F. Händel á hádegistónleikum sem fram fara í dag, fimmtudaginn 14. nóvember, í Fríkirkjunni við Tjörnina.

Segir í tilkynningu að einnig flytji þau Ave Maríur og að tónleikarnir séu hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni.

Þá hefjast tónleikarnir klukkan 12 og taka um hálfa klukkustund en aðgangseyrir er 2.000 krónur og ekki er tekið við greiðslukortum.