Íslendingalið Bilbao og Maroussi eru bæði komin áfram í milliriðla í Evrópubikar FIBA í körfuknattleik eftir sigra í gær. Tryggvi Snær Hlinason og liðsfélagar hans í Bilbao frá Spáni unnu J-riðil riðlakeppninnar og leika í B-riðli í milliriðlum ásamt Cholet, Sassari og Le Portel. Elvar Már Friðriksson og Maoussi frá Grikklandi höfnuðu í 2. sæti G-riðils og leika í A-riðlinum ásamt Zaragoza, Tofas og Porta. Keppni í milliriðlum hefst 4. desember.