Taiwo Badmus fór á kostum fyrir Val þegar liðið hafði betur gegn KR í Reykjavíkurslag 7. umferðar úrvalsdeildar karla í körfuknattleik á Hlíðarenda í gær. Leiknum lauk með sjö stiga sigri Vals, 101:94, en Badmus skoraði 37 stig, tók fimm fráköst og gaf tvær stoðsendingar í leiknum
Umkringdur Valsarinn Taiwo Badmus sækir að KR-ingum á Hlíðarenda í gær en hann fór á kostum í leiknum og skoraði 37 stig og tók fimm fráköst.
Umkringdur Valsarinn Taiwo Badmus sækir að KR-ingum á Hlíðarenda í gær en hann fór á kostum í leiknum og skoraði 37 stig og tók fimm fráköst. — Morgunblaðið/Eggert

Körfuboltinn

Bjarni Helgason

bjarnih@mbl.is

Taiwo Badmus fór á kostum fyrir Val þegar liðið hafði betur gegn KR í Reykjavíkurslag 7. umferðar úrvalsdeildar karla í körfuknattleik á Hlíðarenda í gær. Leiknum lauk með sjö stiga sigri Vals, 101:94, en Badmus skoraði 37 stig, tók fimm fráköst og gaf tvær stoðsendingar í leiknum.

Þetta var þriðji sigur Íslandsmeistara Vals á tímabilinu en liðið er með sex stig í 9. sæti deildarinnar eftir brösótta byrjun á tímabilinu. Nýliðar KR eru einnig með sex stig í 10. sætinu, sex stigum frá fallsæti.

KR-ingar voru sterkari í fyrri hálfleik á meðan Valsmenn voru sterkari í síðari hálfleik. KR tókst að minnka forskot Vals í fimm stig þegar 30 sekúndur voru til leiksloka, 99:94, en lengra komust

...