Birgir Már Birgisson fór á kostum hjá FH þegar liðið vann stórsigur gegn KA, 36:25, í 10. umferð úrvalsdeildar karla í handknattleik í Kaplakrika í gær en Birgir Már gerði sér lítið fyrir og skoraði átta mörk í leiknum
8 Birgir Már Birgisson reynir skot að marki Akureyringa í Kaplakrika í gær en hornamaðurinn gerði sér lítið fyrir og skoraði átta mörk í leiknum.
8 Birgir Már Birgisson reynir skot að marki Akureyringa í Kaplakrika í gær en hornamaðurinn gerði sér lítið fyrir og skoraði átta mörk í leiknum. — Morgunblaðið/Eggert

Handboltinn

Bjarni Helgason

bjarnih@mbl.is

Birgir Már Birgisson fór á kostum hjá FH þegar liðið vann stórsigur gegn KA, 36:25, í 10. umferð úrvalsdeildar karla í handknattleik í Kaplakrika í gær en Birgir Már gerði sér lítið fyrir og skoraði átta mörk í leiknum.

FH er með 15 stig á toppi deildarinnar og hefur aðeins tapað einum leik af síðustu fimm og er liðið ósigrað í síðustu fjórum leikjum sínum. KA er í 10. sætinu með fimm stig en liðið vann síðast deildarleik gegn KA þann 17. október.

Akureyringar byrjuðu leikinn betur og komust í 3:1 en þá hrukku Íslandsmeistararnir í gang. Þeir jöfnuðu metin í 3:3 eftir tæplega tíu mínútna leik og litu aldrei um öxl eftir það en staðan í hálfleik var 17:12, FH í vil. Daníel Freyr Andrésson varði 13 skot

...