Lionsklúbburinn Keilir í Vogum á Vatnsleysuströnd hefur ákveðið að leggja sitt af mörkum til að styðja við starfsemi Ljóssins með því að selja súkkulaðidagatöl fyrir þessi jól. Ágóði af sölunni mun renna til Ljóssins og Krabbameinsfélags Íslands.
Þetta verkefni er liður í undirbúningi 50 ára afmælis Lionsklúbbsins Keilis, sem verður haldið hátíðlegt í apríl 2025, segir í fréttatilkynningu frá Ljósinu.
Jóladagatölin eru til sölu í öllum helstu matvöruverslunum landsins, auk þess einnig í Blómaval og sumum verslunum BYKO og Húsasmiðjunnar.