Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir því svartfellska í Þjóðadeildinni í Niksic, 50 kílómetra norður af höfuðborginni Podgorica, klukkan 17 í dag. Leikurinn átti að fara fram í Podgorica en völlurinn var ekki í nógu góðu standi að mati…
Einbeittur Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson einbeittur á blaðamannafundi í Podgorica í gær. Hann er klár í sinn fyrsta landsleik eftir hlé.
Einbeittur Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson einbeittur á blaðamannafundi í Podgorica í gær. Hann er klár í sinn fyrsta landsleik eftir hlé. — Morgunblaðið/Jóhann Ingi

Í Podgorica

Jóhann Ingi Hafþórsson

johanningi@mbl.is

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir því svartfellska í Þjóðadeildinni í Niksic, 50 kílómetra norður af höfuðborginni Podgorica, klukkan 17 í dag. Leikurinn átti að fara fram í Podgorica en völlurinn var ekki í nógu góðu standi að mati eftirlitsmanna evrópska knattspyrnusambandsins og var leikurinn því færður.

Með sigri í Niksic á Ísland enn möguleika á öðru sæti í 4. riðli B-deildarinnar og væri þá í leiðinni í umspil þar sem sæti í A-deildinni er undir. Íslenska liðið þarf hins vegar að treysta á að Wales tapi stigum gegn Tyrklandi á útivelli. Þá myndu Ísland og Wales leika úrslitaleik um annað sætið í Cardiff á þriðjudaginn kemur.

„Við viljum búa til

...