Mikið verður um dýrðir á Bókahátíð útgefenda í Hörpu um helgina. Nýjustu bækurnar verða til sölu og sýnis og boðið upp á upplestra alls 107 rithöfunda og þýðenda. Heitt verður á könnunni og föndurverkstæði fyrir börnin. Hægt er að rýna inn í framtíðina því spákonur leggja tarotspil fyrir gesti hátíðarinnar. Bókatíðindi liggja frammi en jólaundirbúningur bókaþjóðarinnar hefst gjarnan á því að fletta þeim og láta sig dreyma um dýrindis sögu á jólanótt. Opið er kl. 11-17 bæði laugardag og sunnudag.